Ökutækjaferill, veðbönd og drög að kaupsamningi
Það fyrsta sem Frágangur gerir þegar pöntun hefur verið greidd er að kanna stöðu ökutækisins og opinberra gjalda. Ökutækjaferill og möguleg slysa- og tjónasaga er síðan send á kaupanda og seljanda ásamt drögum að kaupsamningi.
Þá er gengið úr skugga um að ökutækið sé veðbandalaust áður en gengið er frá viðskiptunum.






