Um Frágang
Fyrirtækið
Frágangur (Bílafrágangur ehf.) var stofnaður í mars 2020 af tæknifrumkvöðlinum Helga Pjetri og bifreiðasölunum Grétari G. Hagalín og Steinari Þór Guðjónssyni.
Helgi Pjetur á farsæla sögu að baki þegar kemur að stofnun tæknifyrirtækja, en meðal þeirra sem hann hefur stofnað eru Alfreð, Aur, Leggja og Stokkur. Grétar og Steinar eiga og reka Netbifreiðasöluna (NBS) að Hlíðasmára 13, Kópavogi.
Markmið Frágangs er að gera ökutækjaviðskipti algerlega rafræn frá A til Ö og bjóða öllum sem kaupa og/eða selja ökutæki að nýta sér rafræna þjónustu til að tryggja öruggari, einfaldari og hraðari ökutækjaviðskipti.
Árið 2022 kom Arion banki inn í hluthafahóp Frágangs.
Starfsfólk

Helgi Pjetur
Framkvæmdastjóri

Grétar G. Hagalín
Löggiltur bifreiðasali

Steinar Þór Guðjónsson
Löggiltur bifreiðasali

Dýrleif Bjarnadóttir Þormar
Þjónustumál

Andri Már Þórhallsson
Forritun

Orri Ólafsson
Forritun
Samstarfsaðilar
Til þess að tryggja sem besta þjónustu fyrir viðskiptavini okkar er Frágangur í góðu, rafrænu samstarfi við alla helstu lánveitendur landsins, tryggingafélögin og Samgöngustofu.
Umhverfisstefna Frágangs
Umhverfisvernd og loftgæði eru mjög ofarlega í huga okkar sem störfum við Frágang. Kerfið okkar útbýr öll skjöl og sendir þau á viðeigandi staði með rafrænum hætti. Þjónustan okkar stuðlar beint að betri loftgæðum og minni útblæstri þar sem viðskiptavinir okkar skrifa undir með rafrænum hætti og þurfa ekki að keyra til okkar til þess að skrifa undir pappíra.
Við höfum einsett okkur að allar viðbætur við kerfið séu gerðar með umhverfissjónarmið að leiðarljósi og við munum hvetja alla okkar samstarfs- og hagsmunaaðila til að gera slíkt hið sama.
Minnkaðu kolefnisspor með Frágangi
Með hjálp Taktikal, samstarfsaðila okkar við rafrænar undirritanir, getum við mælt fjölda kílómetra, CO₂ og fjölda bílferða sem viðskiptavinir okkar spara með því að nota Frágang. Öll gögn sem notuð eru við mælingarnar eru ópersónugreinanleg. Mælingar hófust 24. apríl 2020.

Hafðu samband
Heimilisfang
Lágmúli 5, 108 Reykjavík
Netspjall
Opnaðu netspjallið og spjallaðu við okkur beint.














